Almennir skilmálar

Skilmálar Maxeffort EHF.

Almennt

Skilmálar þessir gilda um sölu á vörum og þjónustu Maxeffort ehf. til neytenda og eru samþykktir með staðfestingu á kaupum. Kaupandi skal vera orðinn fjárráða til þess að versla á vefsvæðinu. 

Þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir gilda um viðskiptin lög um neytendakaup nr. 48/2003 en jafnframt ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016.

Allar upplýsingar á vefnum eru með fyrirvara um prentvillur, verðbreytingar og birgðastöðu. Maxeffort ehf. áskilur sér rétt til að falla frá viðskiptum vegna rangra upplýsinga á vefnum, þar með talið vegna verðbreytinga eða rangrar birgðastöðu.

Seljandi er Maxeffort ehf., kennitala 481004-3650, VSK númer 84504

Heimilisfang: Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður

Netfang: Vignir@maxeffort.is

Skilaréttur og endurgreiðslur

Vörum er hægt að skila innan 14 daga frá kaupum og í staðinn fá inneign eða fulla endurgreiðslu enda geti kaupandi framvísað sölureikningi, útgefnum af Maxeffort ehf. vegna kaupanna. Vara sem kaupandi leitast við að skila skal vera ógölluð, óopnuð og ósamsett. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda nema að um sé að ræða gallaða vöru, sé um gallaða vöru að ræða þá greiðir Maxeffort ehf. sendingarkostnað. Ath. að í sumum tilvikum þar sem að endursending felur í sér verulegan kostnað áskilur Maxeffort ehf. sér rétt til þess að gera við göllaða vöru í stað þess að taka við endursendingu.
 

Verð

Öll verð í netverslun eru innihalda virðisaukaskatt (VSK) sem við á, eftir vöruflokkum (11% eða 24%). Verð í netverslun geta breyst án fyrirvara. Maxeffort ehf. áskilur sér rétt til þess að rifta viðskiptum ef rangt verð hefur verið gefið upp. Sé vara uppseld hefur Maxeffort ehf. samband við kaupanda og honum boðin sambærileg vara eða endurgreiðsla, eftir sem við á.

Greiðslur

Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Saltpay og hægt er að greiða með öllum debit- og kreditkortum frá Visa og Mastercard. Einnig er hægt að greiða með Netgíró (kortalaus viðskipti).

Viðskiptavinir Maxeffort ehf. eru hvattir til þess að kynna sér skilmála og þann kostnað sem hlýst af greiðsludreifingu eða raðgreiðslum hjá þjónustuaðilum sem við eiga, áður en gengið er frá greiðslu.

Afhending

Maxeffort ehf. býður upp á þrjá afhendingamöguleika á höfuðborgarsvæðinu, sækja, fá heimsent eða sækja á afgreiðslustaði Dropp. 

Vörur sem sóttar eru verða tilbúnar til afhendingar eftir hádegi næsta virka dag. Hægt er að sækja vörur eftir samkomulagi, endurgjaldslaust.

Heimsendingarþjónusta gildir á höfuðborgarsvæðinu og eru keyrðar út næsta virka dag eftir að gengið er frá greiðslu. Heimsendingarkostnaður er í samræmi við verðskrá Dropp (allt að 60 kg). Vörur eru afhentar við bílastæði en bílstjóri sér eingöngu um akstur og að koma vörum úr bíl, til að gæta hagkvæmni þarf móttakandi að vera á staðnum á þeim tíma sem sendingin berst. Ef þörf er á aðstoð við að bera vörur inn á heimili eða fyrirtæki, bendum við á sendibílaþjónustur, þar er greitt eftir gjaldskrá. Hvers konar tjón eða skemmdir sem verða á vörum eftir að þær eru komnar úr bílnum eru á ábyrgð móttakanda.

Ef móttakandi er ekki til staðar eru vörurnar keyrðar aftur í vöruhús Maxeffort og skulu þær sóttar þar. 

Fyrir sendingar utan höfuðborgarsvæðisins gildir verðskrá Dropp. Við bendum viðskiptavinum okkar á að óska tilboðs fyrir stórar sendingar, við getum aðstoðað. Sendu okkur línu á Vignir@maxeffort.is og við sendum þér upplýsingar um stærð og þyngd sendingarinnar.

Varnarþing

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið við Héraðsdóm Reykjaness.

Samskipti

Hægt er að hafa samband við Maxeffort í gegnum netfangið Vignir@maxeffort.is 

Trúnaður

Maxeffort ehf. heitir viðskiptavinum sínum fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem gefnar eru upp í tengslum við viðskipti. Upplýsingar viðskiptavina eru ekki framseldar eða afhentar þriðja aðila nema til þess að framfylgja viðskiptum, s.s. með póstsendingum eða hraðsendingarþjónustu. Maxeffort ehf. meðhöldlar persónuupplýsingar viðskiptavina í samræmi við gildandi lög og reglur um meðferð slíkra upplýsinga.

Shopping Cart
Scroll to Top